Þriðjudagur, 30. júní 2009
Næsta rall
Næstu helgi fer fram önnur umferð íslandsmótsins og það verður án efa hart barist. Til stóð að keppnin yrði haldin á Snæfellsnesi en sökum ófærðar á mörgum sérleiðanna var ákveðið að færa keppnina á suðurnesin og verður keppt í grennd við Krísuvík.
Keppendur eru margir og hafa flestir hverjir ekið þessar sérleiðar oft áður og ættu því að kunna að ná góðum tímum þar. Í grúppu N eru þeir Jón Bjarni og Sæmundur sigurstranglegastir og miðað við úrslit síðustu keppni þá er það væntanlega aðeins spurning um að ekkert komi uppá en það er sjaldgjæft í rallakstri að áhöfn fari áfallalaust í gegnum keppni. Eina áhöfnin sem gæti ógnað þeim félögum eru þeir Páll Harðarsson og Aðalsteinn Símonarsson en þeir aka á gífurlega öflugum Subaru STI WRX sem hefur nýlega fengið nokkur hestöfl í viðbót undir húddið. En það varður hart barist um annað sætið í þessari keppni og þar tel ég tvo koma til greina eða þá Fylkir og Elvar á Subaru STI eða Jóhannes og Björgvin á Evo6. Í jeppaflokki eru sex keppendur skráðir og það verður vafalaust mikið action í gangi þar, því að meðal keppanda þar eru til dæmis Sighvatur Sigurðsson sem hefur gífurlega reynslu og er auk þess á gríðarlega öflugum Pajero jeppa. Daníel Sigurðsson verður grimmur en hann þarf að keyra botninn úr bílnum ef hann ætlar sér að jafna tíma keppninauta sinna enda er hann á talsvert aflminni bíl. Bræðurnir Guðmundur og Hörður McKinstry keppa á Tomcat og ef síðasta keppni er einhver vísbending þá verða þeir að keppa um fyrsta sætið í þessum flokk.
Í okkar flokk eru fjórir keppendur skráðir ef Örn Dalabóndi er talinn með en hann er heiðursfélagi BÍKR. Örn tók þátt í fyrstu rallkeppninni á íslandi og keppir nú á Trabant 601L og er því ekki samkeppnishæfur við okkur hina hvað varðar afl en hann gæti þó unnið okkur því að hann kann að klára rall kallinn.
Magnús Þórðarsson og bróðir hans Bragi í TeamYellow þurfa að ná sér í eins mörg stig og mögulegt er því að þeir kláruðu ekki síðustu keppni og eru því án stiga í íslandsmótinu enn sem komið er. Júlli og Eyfi leiða íslandsmótið með tveim stigum eftir flottann akstur í síðustu keppni þrátt fyrir að vélin hafi eitthvað verið að stríða þeim á köflum. Báðar þessar áhafnir ætla sér sigur í þessari keppni og það verður ekki auðvelt að slá þeim við.
Það sem einkennir þetta rall er að sérleiðarnar eru langar og það kostar það að þú færð færri sérleiðatíma sem gerir það erfitt að sjá hvort þörf sé á því að aka hraðar eða hvort keppninautarnir séu þægilega langt fyrir aftan.
Þetta verður því erfitt rall en á heimavelli...
Bloggar | Breytt 3.7.2009 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
!!! Frábært !!!
Frábært að sjá að seðlabankastjórn er búin að átta sig á því sem við hin vissum
Eiríkur, komdu þér bara út takk fyrir
|
Mikilvægast að gengið styrkist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Björgunarpakki heimilana
Er þetta þessi björgunarpakki heimilana?
.
|
500 mál enda hjá lögreglu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 15. janúar 2009
Bensínið hækkar enn
Þrátt fyrir að brent hráoliufatan í Evrópu hafi lækkað um 2,2% í dag og kostaði 45.40 Bandaríkjadali
....
|
Verð á eldsneyti hækkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 5. janúar 2009
Belti
Ef þú ert virkur í umferðinni og keyrir oftar en einu sinni í mánuði eða svo, þá ertu líklegast búin(n) að lenda í umferðaróhappi. Ef þú hefur ekki lent í árekstri ennþá þá áttu það einfaldlega eftir, tölfræðin segir okkur það. Ég hef lent í árekstri, það er ekki skemmtileg lífsreynsla og það var sem betur fer ekki mjög alvarlegt en ég hef það líka fyrir reglu að vera alltaf í bílbelti. Mín reynsla af akstursíþróttum hefur einfaldlega sýnt mér hversu mikilvægt það er að vera ekki laus í farartæki sem hreyfist hraðar en 10km á klst. Þegar ég ek um þá átta ég mig á því að raunveruleg hætta er á því að ég muni lenda í árekstri aftur og þá vill ég helst vita að líkurnar á að ég drepi einhvern með bílnum mínum séu með minnsta móti. Þess vegna vill ég að fólk hugsi aðeins og noti bílbelti.
Mig langar að birta þessa frétt af rnu.is (Rannsóknarnefnd umferðarslysa) Umferðarstofa og Rannsóknarnefnd umferðarslysa hafa miklar áhyggjur af þeim fjölda alvarlegra umferðarslysa sem orðið hafa að undanförnu af völdum þess að öryggisbelti eru ekki notuð. Eitt margra alvarlegra dæma um þetta er banaslysið sem varð á Reykjanesbraut s.l. laugardagskvöld. Ökumaður, sem allt bendir til að hafi ekki verið í öryggisbelti, kastaðist út úr bílnum með fyrrgreindum afleiðingum eftir árekstur við ljósastaur. Flest bendir til þess að koma hefði mátt í veg fyrir alvarlegar afleiðingar slysins með því einu að öryggisbelti hefði verið notað. Hinsvegar eru til fjöldamörg dæmi um það hvernig öryggisbelti bjarga fólki. Þetta vita þeir sem vinna að umferðaröryggismálum og hafa m.a. þann starfa að greina orsakir slysa og afleiðingar. Það sem af er þessu ári hafa orðið tólf banaslys í umferðinni. Í ellefu þeirra kom bíll við sögu en bifhjól í einu. Af þeim ellefu einstaklingum sem létu lífið í bifreiðum voru fjórir sem ekki voru í beltum. Talið er að fækka mætti banaslysum í umferðinni um 20% og alvarlegum umferðarslysum verulega ef allir notuðu bílbelti.Það er mikið áhyggjuefni að fram kemur í nýrri rannsókn sem Capacent Gallup gerði fyrir Umferðarstofu um umferðarhegðun fólks að nú eru fleiri þátttakendur sem taka þá áhættu að ferðast um í bíl án þess að nota öryggisbelti. Í ljósi þess að í mörgum tilfellum nota menn það sem afsökun að vegalengdin sé svo stutt að ekki þurfi að nota öryggisbelti skal tekið fram að í mörgum tilfellum alvarlegustu slysanna var haldið upp í stutta för og oft var hraðinn ekki mikill.
|
Mánudagur, 12. maí 2008
Ný vefsíða fyrir íslenskt mótorsport
Ný vefsíða um íslenskt MótorSport
www.motorsportklippur.net
Kæru mótorsportfíklar
Undanfarin fimm ár hef ég búið við svaðalegt mótorsportleysi útí Kaupmannahöfn og eftirvæntingin fyrir flutninginn heim er líklega skýringin fyrir því hvers vegna ég byrjaði á þessari smíði, en síðastliðna mánuði hef ég unnið að uppsetningu nýrrar vefsíðu sem kallast MótorSportKlippur.net
Hugmyndin er að safna þarna saman eins miklu og hægt er af myndum, myndbrotum og greinum frá öllu því skemmtilega fólki sem umkringir þetta yndislega sport okkar.
Síðan er án auglýsinga og ekki verður seldur aðgangur að síðunni eða efni hennar!
Þó er mögulegt að auglýsa á síðunni en það verður að gera með myndefni eða ljósmyndum sem sýna eitthvað við hæfi lesenda, til dæmis væri velkomið að fá grein frá sponsor um nýja tækni eða vöru sem gæti nýst eða vakið áhuga hjá lesendum síðunnar, eða flott farartæki alsett auglýsingum að gera eitthvað flott!
Þarna er sem sagt komin síða þar sem auðvelt er að koma efni á framfæri auk þess sem ég ætla sjálfur ásamt mínum betri helming að safna inn eins miklu efni og hægt er.
Skráðir notendur geta tekið þátt í umræðu og fá aðgang að sinni eigin síðu (þú finnur tengil í vinstra horninu til að skrá þig)
Myndir og texta geta allir sett inn eftir að hafa fengið til þess tilskilið leyfi,
Allir handhafar LÍA skírteinis hafa þó sjálfgefið leyfi í þeim tilgangi að mismuna ekki keppendum.
Umsókn um leyfi er hægt að nálgast frá "þinni síðu" eftir að nýskráning hefur átt sér stað og eru keppendur, aðstoðarfólk, starfsfólk og áhorfendur hvattir til að sækja um.
Vefsíðan býður upp á nokkra skemmtilega kosti eins og:
Góða leitarvél
Hægt er að taka þátt í umræðu LÍA.is í gegnum MótorSportKlippur.net.
Þú getur sjálf(ur) ráðið útliti síðunnar.
Myndabankinn er opinn öllum skráðum notendum, en þar er auðvelt að færa myndir af tölvunni á netið.
Vídeóbankinn er opinn öllum skráðum notendum og þar er mjög auðvelt að smella inn vídeóum sem þegar eru á netinu (t.d. Frá Youtube, google video, stage6 ofl.) ef þörf er á að setja vídeó á netið sem enn liggur á tölvunni þarf þó að hafa samband við vefstjóra.
Á "þinni síðu" er hægt að fá yfirlit yfir þær greinar sem þú hefur merkt sem þínar uppáhalds, fá yfirlit yfir það sem þú hefur sagt í umræðunni ásamt keppnisdagatali, einnig er hægt að senda skilaboð til vefstjóra eða annara notenda.
Öllum greinum sem eru settar á síðuna er hægt að gefa einkunn og þannig hafa notendur tækifæri til að láta í sér kveða með hvers kyns efni eigi að einbeita sér að.
Öðru hverju eru birtar "klippur" sem er sameinað efni sem veitir betri yfirsýn yfir keppnir, bætt t.d. við úrslitum, efni frá mörgum aðilum er blandað saman og gefið út sem ein heild.
Meginmarkmið þessarar síðu er að mynda tengilið milli keppanda og áhugafólks, farið verður út í markaðsetningu á netinu til að reyna að auka áhuga og vitund hins almenna borgara á íslensku mótorsporti.
Það er einlæg ósk mín að þessari síðu verði vel tekið og að sem flestir leggi sitt af mörkum til þess að við getum öll fengið okkar skammt....
Kær kveðja
Halldór Vilberg Ómarsson
Mótorsportfíkill
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 25. mars 2008
Þessi opnar vonandi fljótt
Ég hef verið upptekinn við þetta síðastliðna mánuði og er núna að komast á lokastigið. motorsportklippur.net
Vona að fólki líki þetta vel
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 21. febrúar 2008
RallýSlagur
Fylkir / Elvar vs. Óskar / Valtýr
Óskar / Valtýr vs. Danni / Ásta
Ólafur / Sigurður vs. Gunnar / Jóhann
Björn / Þórey vs. Sæmundur / Kristján
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 17. febrúar 2008
Rallslagur Jói / Linda vs. Pétur / Heimir
Þetta er svakalega close....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)



